8. desember

Rektor

Fluga með sögu. Íslandssögu. Rektorinn var hnýtt upphaflega af Kolbeini Grímssyni, þeim mikla höfuðsnillingi, (pabba Guðna og afa Hilmis Snæs) og sagan segir að hún hafi verið upphaflega hnýtt í veiðihúsinu í Laxá í Mývatnssveit. Hann lét Bjarna Kristjánsson, rektor Tækniskólans hafa hana ónefnda til reynslu og til að gera langa sögu stutta ku Bjarni hafa mokveitt á þessa nýju flugu og þegar hann spurði Kolbein hvað flugan héti, svaraði hann um leið: Rektor. Það hafa margar flugur orðið til á bökkum Laxár í Mývatnssveit og Rektorinn er ein af þeim allra bestu.

Veiðidót

Á seinasta snúning með gjafir?

Ertu á seinasta séns að kaupa jólagjöf? Vantar þig eitthvað sem steinliggur fyrir veiðifólkið í þínu lífi?Notaðu kóðann jolin2023 og fáðu 20% afslátt af öllum aukahlutum í vefverslun.

Skoða úrval

fluguáskrift

Haltu spennunni gangandi

Við bjóðum uppá áskrift af mánaðarlegum veiðikössum. Kassinn inniheldur alltaf 6-10 flugur, límmiða, veiðisögur og óvæntan veiðiglaðning. Fullkomin leið til þess að uppgötva nýjar og spennandi flugur ásamt því að seðja veiðihungrið yfir köldustu mánuðina

Sjá gjafabréf