Er þín fluga á leiðinni í veiðikassann?

Við hjá Fly Fishing Bar erum alltaf á höttunum eftir einhverju nýju og spennandi. Hluti af þeirri viðleitni okkar er að við viljum koma á óvart með nýjum og spennandi flugum.

Við erum því að leita að flugum sem enginn hefur séð áður! Nema þú auðvitað.

Ert þú að hnýta og hefur áhuga á að þín fluga verði sett í veiðikassa hundruða veiðimanna? Sendu okkur myndir af flugunni, segðu okkur frá því hvernig hún hefur veitt fyrir þig og við veljum svo þær flugur sem okkur þykir veiðilegar! Við veljum kannski bara eina, eða við veljum 10!

Þeir sem skoða flugurnar eru ekki óvanir veiðimenn og ættu því að geta þekkt góða flugu á nóinu! Það eru nefnilega alvöru menn í dómnefnindin, Haugurinn, Reiða öndin, Ási og Gunni Helga.


Leikreglur:

  • Fluga sem hefur ekki farið í almenna sölu er aðeins gjaldgeng.
  • Hönnuður flugunnar mun eiga fullan höfundarrétt á flugunni.
  • Fly Fishing Bar fær þó leyfi til að framleiða flugur sem verða fyrir
    vali dómnefndar og setja þær í huldukassa veiðimanna.

    Vinningshafar fá:
  • 50 stk af sinni flugu!
  • Þriggja mánaða áskrift af veiðikassanum.
  • Texta um sig og flugunar í þeim veiðikassa sem þær koma í.